Wednesday, April 20, 2005

Og þá var kátt í höllinni !!!

Já gott fólk, nú er heimasætan aldeilis ánægð !
... hún er nefninlega komin í helgarfrí, og það á miðvikudegi, það gerist varla betra en þetta skal ég nú ykkur segja :) .. Eins og flestir vita þá er sumardagurinn fyrsti á morgun, og auðvitað er frí á þeim stórmerkilega degi. Svo á föstudaginn er DimmiterinG hjá mér því það er víst áætlunin að útskrifast með pompi og pragt þann 21.maí næstkomandi :D Og því í staðin fyrir að fara í félagsfræði 313 eins og vanalega á föstudagsmorgnum kl, 8, þá fer mín bara á bar og mun þá gamanið byrja !! Algjör snilld allt saman !! Var einmitt að fá búninginn minn áðan og er hann bara frekar nettur, en ekki fleiri orð um það ,,, ussss ;) ... einnig hef ég lokið við næstum öll stóru verkefnin í skólanum þannig nú verður tekin örstutt lærdómspása, og svo tekið hart á þessu í prófunum, how about that Bobby ??? ....
Hver býr eiginlega í herberginu mínu ? Það lýtur hræðilega út, allt út um allt, trúi ekki að þetta sé eftir mig ;) En hvort sem þetta er eftir mig, eða einhvern annan sem stelst til að drasla allt út hérna þarf ég að fara að drífa í að fixa þetta !!
Spurning hvort maður ætti að hóa í allt í drasli dúettið ,,, hmmm :)
.... en ég heyrði frekar fyndna sögu úr þætti í fjölmiðlafræði um daginn og ætla að enda þennan hamingjupistil á honum,

Þetta er þáttur eftir einhvern mann sem ég því miður náði ekki að festa á minnið hvað heitir, en hvað um það :

Sú ákvörðun var tekin af fjölskyldu einni í Bandaríkjunum að ætleiða barn, þar sem þessi umræddu hjón áttu í erfiðleikum með að geta sjálf barn. Þau ættleiddu svartan, blindan dreng. Þau urðu hamingjusöm fjölskylda og allt gekk líkt og í sögu. Eitt var þó sérstakt og það var það að drengurinn var alinn upp í þeirri trú að hann væri hvítur. Samfélagið allt í litla bænum þar sem þau tók þátt í þessari lygi. Hann ólst upp og varð einn mesti rasisti sem hægt er að finna ! .... Hann kvæntist hvítri konu og voru þau ágætleg hamingjusöm saman. Einn daginn fékk hann að vita sannleikann um sig, að hann væri í rauninni svartur. Þetta var honum auðvitað mikið sjokk og tók það hann nokkurn tíma að jafna sig. Um leið og mesta sjokkið var liðið hjá tók hann þá ákvörðun að skilja við konuna sína. Ástæðan sem hann gaf fyrir því var sú að hún væri "nigger lover" !!!

Athyglisvert :D

en nú ætla ég að kveðja, með bros á vör :) :) Fariði vel með ykkur dúllurnar mínar ....

Sandra H. Harðardóttir .....

0 Comments:

Post a Comment

<< Home

[ Skoða gestabókina. ]
[ Skrifa í gestabókina - skylda! ]
Vantar þig gestabók? Smelltu hér
West Virginia Surnames