Sunday, December 18, 2005

Ef þið hafið rambað inn á þessa síðu fyrir slysni...

þá er nýja 69 síðan á www.sextiuogniu2.blogspot.com

Vi ses

Monday, May 30, 2005

Loklokoglæs

sixty nine var lokað í gær í síðasta sinn... við þökkum öllum sem elskuðu okkur stuðninginn...

69 4ever

Thursday, May 19, 2005

Það var ...

... Laglegt !!!

Mín bara búin að ná öllum prófunum og ekkert ætti að hindra það að ég nái að útskrifast á laugardaginn :) .... Er mjög ánægð með þetta, svo gott að vera búin með menntaskólann ! :)
Svo á sunnudeginum er planið að yfirgefa 69 :/ og halda austur á leið, á leiðinni verður stoppað á vel völdum stöðum, í Reykjadalnum á Hömrum og í Reykjahlíð hjá ömmu og afa þar. Við verðum vopnuð freyðivíni og snittum frá Jóa Fel (aðeins það besta dugar, og enginn er nettari í að útbúa gómsætar snittur !! ).....
Og þetta verður útskriftarveislan mín, ... mjög sérstakt en þetta verður örugglega líka mjög eftirminnilegt ! .. Er ég kem svo í fjörðinn fagra, verður súpa og læti hjá ömmu og afa uppi ! :) Verð á Seyðisfirði í nokkra daga en held svo burt á vit örlaganna, og byrja að vinna á Narfastöðum, í Reykjadal 25. maí !! :D .....
Jájá ... þetta hljómar allt saman ljómandi vel bara ... hemmm ....
Annars er mér búið að leiðast óbærilega seinustu daga, ekkert að gera nema bíða eftir útskriftinni ... Svo ég ligg bara í rúmminu og tel dauðu flugurnar í gluggakistunni, ekki mjög skemmtilegur leikur samt, bara svo þið vitið það !!! ... En það er stutt í það að allt fari að gerast :) :) ..... Jæja, best að fara í bankann og redda einhverju rugli þar :/ ... Svo er spurning hvort ég reyni ekki að fara með ökumatið mitt og passamyndina sem ég var að láta taka (það tók mig marga mánuði að hafa mig í það og svo tók það innan við 5 mínútur, góður Sandra!) og negla niður þetta fullnaðarskirteini ... hmmm ..... Kveð í bili !! ...
Sandra Hrafnhildur :p

Friday, May 13, 2005

Eitthvað rugl í gangi.

Já, það er eitthvað rugl búið að vera á blogger.com þessa síðustu daga, við Monsi lentum báðir í eilitlum örðuglekum þegar átti að fara að blogga og því hafið þið ekki séð nýja færslu hérna í nokkra daga.

Við mælumst til þess að mr. Dagson hætti að verða sér til skammar hér á spjallborðinu með bullulátum og dólgshætti og grunum við manninn um króníska áfengiseitrun, en heyrst hefur að félaginn sé fastagestur á Hlemmi þessa dagana... hehe, en í alvöru talað, þá er þetta nett þreytt....

Við viljum minna fólk á nýju og glæsilegu Hugins-síðuna, www.huginn.org og er sú síða ekkert slor gott fólk, greinilegt er að góðir menn eiga mikinn heiður skilið fyrir síðuna. Bendum einnig á spjallborðið, þar sem líflegar umræður á jákvæðum nótum munu verða í allt sumar og það verður gaman að fylgjast með strákunum, Afturelding - Huginn kl. 14 á mánudag á Tungubökkum, síðan má einnig benda á debut-leik Bjarna Hólm gegn sínum gömlu félögum síðar sama dag á Laugardalsvelli, Fram - ÍBV. Sannkölluð knattspyrnuveisla fyrir Seyðfirðinga, væri ekki ónýtt að kíkja á báða þessa leiki.

En ég ætla þá að læra aðeins fyrir síðasta prófið mitt, sem er á morgun. Og í framhjáhlaupi væri þess vert að nefna að það að horfa á Million Dollar Baby er sú mesta tímasóun sem ég hef lent í á mínum ferli og hef ég nú oft eitt tímanum til einskis. Langdregin og leiðinleg mynd og Clint Eastwood er bara ekki lengur cool....!

Bið að heilsa,
Kv.
Stefán Ómar.

Saturday, May 07, 2005

Reykjavík - 101 - Grettisgata 69 - senn á enda!

þetta er flóðhestur, fokk fokk fokk
þetta er flóðhestur, fokk fokk fokk
þetta er flóðhestur, fokk fokk fokk
þetta er flóðhestur, fokk fokk fokk
þetta er flóðhestur, fokk fokk fokk
þetta er flóðhestur, fokk fokk fokk
þetta er flóðhestur, fokk fokk fokk
þetta er flóðhestur, fokk fokk fokk

jáá svona hljómar viðlagið í laginu Íslenskt indjánapönk með hjlómsveitinni Búdrýgindi!! aaaalger fagmennska sko!! hehe.. snilldar diskur og bendi ég fólki að verða sér útum hann ef þið hafið ekki hlustað'ann á!!!!

En að öðru.. jáá það er nú ekki mikið eftir af veru minnar hér á 69!! ..alls ekki gott það! ég verð víst að leiðrétta eina spurningu í könnuninni minni sem hljómaði e-ð í þessa átt: hvenar lýður 69 undir lok? og rétt svar þar var e-ð 31. maí... það er náttúrulega bara vitleysa sjáiði til!! AUÐVITAÐ verður 69 ávalt í hjörtum og minningum okkar!!! annað væri bara fááránlegt sko! ..allir sem komið hafa á Grettarann eiga einhverjar ógleymanlegar minningar... það er aalveg á hreinu!! :)

...hættum þessu væli og verum glöð!! það er sól og blýða í BorgÓttans (eða Óttars einsog Óttar Brjánn vildi meina!!) ..en ég sit hérna einn á lendaskýlunni á leið í sturtu.. ákv. að blogga aðeins fyrst þar sem ekkert hafði verið bloggað síðan 4.maí....

í gær 6.maí átti karl faðir minn afmæli.. rétt rúmlega þrítugur!! ;) ..neinei sá gamli orðinn 46 ára.. ööössshhhh þarna er sko reynsla á ferð!! We shall have that CristalClean you know!!! ..fær hann því afmæliskveðjur gærdagsins frá Grettaranum, finnst samt ótrúlegt að hann hafi týma til að kíkja á netið og hvað þá að hann viti af þessari síðu ;) ..en allavega!!

En í dag mun ég bara hafa það rólegt býst ég við.. held ég sé að næla mér í einhverja pest, en hvað er það!! það er bara fyrir pappakassa svo ég hlusta ekkert á það.. held bara áfram mínu lífi!! :) ..en ég þarf nú bara að læra e-ð.. gera einhverjar spurningar og svona fyrir Ink102!! já þið vitið ekkert hvað það er hehe iðnaðarmannamál!!

segjum það að sinni.. en eitt til viðbótar:

ég er hálfur marsbúi
með rússneskan ríkisborgararétt
ég lifi á fiskeldi
og vinn í gæludýrabúð!

þetta er hinsvegar viðlagið í Krókódíla kúrbít einnig með Búdrýgindi

...tuo si nomiS

Wednesday, May 04, 2005

Félagarnir mættir...nettir...

Sá atburður gerðist í dag að Ögmundur Ómarsson skellti sér á American Style í fyrsta skipti í lífinu... Það er sannkallað strákakvöld á 69 í kvöld, þar sem Dabbi Kóngur, El Tulipano Hólms, Ólafur Kústur og Monsi Ól. eru hér saman komnir, og svo bætist Jakob sennilega við síðar í kvell.... Söknum Bangsans okkar þó sárt, en við vonuðum fram á síðustu stundu að hann myndi koma, en það er busy week núna hjá kappanum. Sama má segja um Hafþór Atla, sem komst ekki vegna anna.... Vottum við þeim mikla samúð yfir að hafa ekki komist.

en við segjum ykkur betur frá öllu síðar...

love to y'all

Monday, May 02, 2005

Pældu í því ef það væri satt !! ...

Er með þessa setningu á heilanum !!! ... Argg ....

Búin með eitt, eða reyndar tvö próf, íslensku 503 og íslenskt samræmt próf. Þessi samræmdupróf eru samt mesta rugl í heimi ! Það er ekki hægt að fá minna en 5 í þeim, og það kemur hvergi fram hvað maður fær í þeim bara að maður hafi mætt í þau. Sé ekki alveg tilganginn með þessu, enda veit ég um fullt af fólki sem skilaði þeim bara auðum, sat meira að segja einn strákur við hliðina á mér sem gerði það !! Tek það þó fram að ég gerði allt í því, hehe ...
Nú verður bara lært út í eitt og rúllað þessum prófum upp, held það nú bara, jamm jamm :) Svo er stelpan að fara til Englands 10-17. júní og er að byrja að myndast nettur spenningur fyrir þá ferð :) :) ....
... Alltof langt síðan maður fór til útlanda !! ... Það sem er reyndar ekki alveg jafn spennandi við þessa ferð, allaveg ekki eftir á er það hverstu miklum peningum ég á eftir að sólunda .. hehe en það verður án alls efa gaman meðan það er að gerast. Elska að versla :) :) ...... en hef ekkert meira að tauta í dag ! Ætla að fara að læra og redda stúdentahúfunni, þvílík gleði :D

... Rakst á þessi ansalegu lög sem eru víst enn í gangi í Bandaríkjunum ... Jahhh ... Kannski er ástæða fyrir því að fólk haldi því fram að kaninn sé vitlaus, veit ekki sko .....

Illegal for a woman to drive a car unless there is a man either running or walking in front of it waving a red flag to warn approaching motorists and pedestrians. 
Location: United States, Tennessee, Memphis

It is a capital offense to inadvertently kill someone while attempting suicide. 
Location: United States, South Carolina

You cannot walk backwards eating peanuts in front of the Barnstormers Auditorium during a performance. 
Location: United States, Pennsylvania, Ridley Park

You may not have more than two dildos in a house. 
Location: United States, Arizona

It is required that a woman have a permit to wear cosmetics. 
Location: United States, Pennsylvania, Morrisville

Idiots may not vote. 
Location: United States, New Mexico

You cannot eat a doughnut and walk backwards on a city street. 
Location: United States, Ohio, Marion
Detonating a nuclear device within the city limits results in a $500 fine. 
Location: United States, California, Chico

A man over the age of 18 may be arrested for statutory rape if the passenger in his car is not wearing her socks and shoes, and is under the age of 17. 
Location: United States, Indiana

Having sexual relations with a porcupine is illegal.
Location: United States, Florida

It is illegal to wipe one's car with used underwear. 
Location: United States, California, San Francisco

You may not sell toothpaste and a toothbrush to the same customer on a Sunday. 
Location: United States, Rhode Island, Providence

Illegal for a man to give his sweetheart a box of candy weighing less than fifty pounds. 
Location: United States, Idaho

It is illegal to buy or sell marijuana, but it is legal to smoke it on your own property. 
Location: United States, Oregon

 It is still illegal to bring a donkey or a mule onto a trolley car. 
Location: United States, Pennsylvania, Pittsburg

Drivers of city vehicles must respect all traffic rules just like the rest of us. 
Location: United States, Texas, Harker Heights

Horses are to wear pants at all times. 
Location: United States, South Carolina, Fountain Inn

You are not permitted to wear cowboy boots unless you already own at least two cows. 
Location: United States, California, Blythe

Any marriage where either of the parties is an idiot or lunatic is null and void. -SECTION 11-40-1 
Location: United States, Rhode Island

It is forbidden to fish while sitting on a giraffe's neck. 
Location: United States, Illinois, Chicago

Whenever two trains meet at an intersection of said tracks, neither shall proceed until the other has. 
Location: United States, Wisconsin

It is illegal to molest butterflies. 
Location: United States, California, Pacific Grove

Pharmacists may not sell gunpowder to cure headaches. 
Location: United States, Utah, Trout Creek

It is considered an offence to push a live moose out of a moving airplane.
Location: United States, Alaska

Owners of horses may not ride them at night without taillights. 
Location: United States, Texas, Texarkana

Og athugið það að það er væntanlega ástæða fyrir því að þessi lög voru sett. :D ....
Já gott fólk, hafiði það gott ;D
Sandra Hrafnhildur ........

Úrslit....

Heimilisdýr ársins...

Votes
Björt Sigfinnsdóttir, Dani og sópran. 26%8
Egill Þorsteinsson, tónlistakennari. 3%1
Hafþór Atli, knattspyrnumaður. 6%2
Ólafur Ágústsson, Alt muligt, Dani, barþjónn, kokkur og kústur. 3%1
Fanney Vigfúsdóttir, mezzosopran. 19%6
Daníel Pálmason Hrl. 0%0
Davíð Þór Sigurðarson, viðskiptaflugstjóri. 19%6
Birkir Pálsson, stærðfræðikennari og Capteinn 6%2
Scottie Pippen. 13%4
Annar... 3%1
31 votes total

Það má segja að Bjötta danska er vel að sigrinum komin, enda þykir okkur öllum vænt um hana og sú staðreynd að hún heimsótti okkur jafn oft og raun ber vitni, þrátt fyrir að vera búsett í Danaveldi þessi misserin, sýnir hversu vel hún á þetta skilið.... Við þökkum Björt fyrir innlitið í vetur, og ykkur öllum hinum, 69 væir ekki það sem það er án ykkar.

Stjórn 69-group ehf.

Fékk hugmynd...

Ég hef verið að horfa upp á það að þurfa að flytja í vor... EEEN.... fékk hugmynd... ef einhver af ykkur, lesendur góðir hefur áhuga á að leigja netta íbúð á snilldarstað næsta vetur, þá gæti bara vel verið að ég hafi samband við leigusalann sem allra fyrst og reyni að tryggja áframhaldandi leigusamning...

Þið þekkið flest þessa íbúð... endilega heyrið í mér ef þið viljið verða Grettarar næsta vetur....

Stefán Ómar...........

[ Skoða gestabókina. ]
[ Skrifa í gestabókina - skylda! ]
Vantar þig gestabók? Smelltu hér
West Virginia Surnames